Skemmdir unnar á Strandarvelli

Skemmdir voru unnar á golfvellinum á Hellu í vikunni. Myndin …
Skemmdir voru unnar á golfvellinum á Hellu í vikunni. Myndin er úr myndasafni. mbl.is/Arnaldur

Skemmdir voru unnar í síðustu viku á golfvellinum á Strönd sem er mitt á milli Hellu og Hvolsvallar.  Að sögn lögreglu var golfbílum ekið um völlinn og spólað á grasinu.  Einnig var golfbílunum ekið á ljósastaura og klúbbhúsið og við þetta skemmdust golfbílarnir. 

Lögreglan segir, að fimm drengir á aldrinum 14 til 17 ára hafi viðurkennt  skemmdarverkin.  Þeir verða spurðir út í málavexti en einn þeirra er ekki sakhæfur. 

Einnig voru skemmdarverk unnin í Vík í Mýrdal aðfaranót sunnudags.  Þar var steypubíll ræstur og ekið á annan við Klakk, sem er gegnt tjaldstæðinu í Vík.  Lyftari var einnig gangsettur og honum ekið að fjöruborðinu, að reiðvegi sem þarna er og þar festist hann í sandkanti.  Rúður voru brotnar í bíl  við verkstæði skammt frá.  

Lögreglan segir, að mikið af fólki hafi verið þarna á tjaldstæðinu og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um þá sem þarna hafa verið að verki beðnir um að snúa sér til lögreglunnar á Hvolsvelli.    

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert