Fékk í sig farsíma og handarbrotnaði

Farsímar geta verið hættuleg vopn.
Farsímar geta verið hættuleg vopn. AP

kona sem handarbrotnaði aðfaranótt sunnudags. Í hana var hent farsíma með fyrrgreindum afleiðingum en þó mun um óviljaverk að ræða að sögn gerandans. Sá sagði við skýrslutöku hjá lögreglu að síminn hefði verið ætlaður öðrum!

Í öðru líkamsárásarmáli um helgina var skófla notuð sem barefli. Að sögn lögreglu voru málsatvik þau, að tveir vinnufélagar voru að störfum við framkvæmdir utandyra. Fyrir slysni varð öðrum þeirra á að sletta ótilgreindu efni á hinn sem brást ókvæða við. Sá síðarnefndi greip til skóflu og sló henni í andlit þess fyrrnefnda sem við það féll í götuna. Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru.

Alls voru sjö líkamsárásir tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en flestar voru  minniháttar. Nokkrir þurftu samt að leita sér aðhlynningar á slysadeild.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert