Á 245 km hraða

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð ökumann mótorhjóls að því að aka á 245 km hraða á Þingvallavegi í fyrrakvöld. Segir lögregla, að þetta brot sé eitt það grófasta sem lögreglumenn hafi séð af þessu tagi.

Á vef lögreglunnar segir, að ökumanninum hafi ekki verið veitt eftirför en bæði hann og þeir sem á vegi hans voru augljóslega í mikilli hættu. Er því ekki vitað hver maðurinn er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert