Ingibjörg Sólrún heiðursgestur á Íslendingadeginum

Íslendingadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag í Kanada.
Íslendingadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag í Kanada. mbl.is/Steinþór Guðbjartsson

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, verður heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar á Íslendingadeginum í Gimli í Kanada að þessu sinni sem og á Íslendingahátíð í Mountain í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum.

Dagskrá hátíðarinnar hefst í dag með athöfn við minnismerki um Stephan G. Stephansson við Garða í Mountain og stendur ferð Ingibjargar Sólrúnar um Íslendingaslóðir í Vesturheimi fram á þriðjudag. Stórir ferðahópar Íslendinga sækja einnig hátíðarnar að heiman.

Ingibjörg Sólrún sendi forseta Íslands og fjölskyldu hans sérstakar árnaðaróskir sínar og Samfylkingarinnar frá Mountain í dag í tilefni af fjórðu embættistökuathöfn hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert