Stakk kærastann

Hafnarfjarðarhöfn.
Hafnarfjarðarhöfn.

Nú í morgun fékk lögregla höfuðborgarsvæðisins tilkynningu um að kona hefði stungið kærasta sinn í Hafnarfirði. Þegar lögreglan kom á staðinn hafði konan lagt á flótta og kastað sér í sjóinn. Hún kom sér síðan sjálf upp úr.

Konan og maðurinn voru á Suðurgötu í Hafnarfirði þegar upp úr sauð á milli þeirra. Meiðsl mannsins reyndust minni háttar en konan var með hníf á sér og er það litið mjög alvarlegum augum.

Lögregla segir, að ástand konunnar hafi verið mjög slæmt og hún hafi verið undir miklum áhrifum einhvers konar lyfja. Var hún því flutt á sjúkrahús. Unnið er að rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert