Einelti gegn læknum á Landspítala

Landspítali.
Landspítali. mbl.is/Ómar

Einelti sem læknar á Landspítalanum segjast verða fyrir er með því mesta sem sést hefur í rannsóknum um einelti á vinnustöðum hér á landi, að sögn Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur, dósents í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á starfsumhverfi og líðan íslenskra, norskra og sænskra sjúkrahússlækna, sem gerð var árin 2004 og 2005 og greint var frá á ráðstefnu norrænna vinnuvistfræðinga í gær, kváðust 12,7 prósent læknanna á Landspítalanum hafa orðið fyrir einelti.

Á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhómi töldu 13,8 prósent læknanna sem þátt tóku í könnuninni sig hafa orðið fyrir einelti en 10,5 prósent læknanna á St. Olavs-sjúkrahúsinu í Þrándheimi.

Læknarnir á Landspítalanum sem kvarta undan einelti nefna oftar yfirmenn sem gerendur, heldur en læknarnir á sjúkrahúsunum í Svíþjóð og Noregi. „Þar kvarta menn frekar undan undirmönnum eða öðrum læknum sem eru jafn hátt settir,“ segir Guðbjörg Linda sem er einn aðstandenda rannsóknarinnar á starfsumhverfi lækna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert