Svandís segir ástandið í borginni snúið

Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri Grænna.
Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri Grænna. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er næsti kafli í farsanum í boði Sjálfstæðisflokksins," segir Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, um væntanlegan meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í borgarstjórn.

Svandís segist vonsvikin að Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, skuli hafi ákveðið að vera sá sem bjargar Sjálfstæðisflokknum. „Ég hefði ekki haldið að væri það hlutverk sem hann vildi að yrði skrifað í sögubækur um hann," segir Svandís.

Svandís segir að ástandið í borginni sé mjög snúið og að borgarstarfsmenn og Reykvíkingar séu orðnir hundleiðir á ástandinu. 

„Sjálfstæðismenn eru búnir að vera með þvílíkan sirkus í gangi allt þetta kjörtímabil, þetta verður næsti kafli í því," sagði Svandís og bætti við að skortur sé á skynsemi í borgarmálum í Reykjavík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert