Tekinn á 149 km hraða

mbl.is/Július

Erlendur ferðamaður var gómaður síðdegis á föstudag fyrir að aka á 149 km/klst hraða á Fagradal.  Hann var ásamt ferðafélaga sínum á leið til Egilsstaða og þótti vegurinn góður til hraðaksturs.

Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum var ökumaðurinn sviptur ökuleyfi á staðnum.  Þurfti ferðafélagi hans að taka við akstrinum og þarf sá líklega að stýra það sem eftir er sumarfrísins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert