Síminn hefur tilkynnt um nokkrar hækkanir á verðskrá fyrirtækisins hinn 15. september næstkomandi. Hækka símreikningar fyrirtækja og einstaklinga að meðaltali um 4% og segir fyrirtækið ástæðurnar liggja í kostnaðaraukningu í rekstri sem tengist meðal annars launaskriði og breytingum á gengi krónunnar.