Húsleit í Hveragerði og Selfossi

mbl.is/Július

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit í Selfossi upp úr klukkan eitt í nótt og í framhaldi af því fór hún einnig í hús í Hveragerði. Bæði húsin tilheyra einstaklingum sem þekktir eru hjá lögreglunni og fór hún þangað vegna rökstudds gruns um að fíkniefni væri að finna í húsunum. Við leitina fannst lítilræði af meintu kannabis og amfetamíni.

Lagt var hald á efnin og málið afgreitt á staðnum.

Þá var einn ökumaður stöðvaður af lögreglunni á Selfossi um klukkan tíu í gærkvöldi vegna gruns um að hann væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert