Samfylkingarkonur vilja lausn ljósmæðradeilu


Kvennahreyfing Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af þeirri launadeilu sem upp er komin milli ríkisins og ljósmæðra. Er skorað á ríkisstjórnarflokkana að leiða kjaradeiluna til lykta og standa þannig við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um endurmat launa hefðbundinna kvennastétta.

„Laun ljósmæðra eru með því sem lægst gerist innan Bandalags háskólamanna þótt nám þeirra sé eitt það lengsta sem krafist er af ríkisstarfsmönnum.
Byrjunarlaun ljósmæðra eru til dæmis helmingi lægri en byrjunarlaun verkfræðinga með meistaragráðu.  Launakjör ljósmæðra eru til marks um að hvorki þarfir né störf kvenna séu metin að verðleikum.  Kvennahreyfing Samfylkingarinnar leggur áherslu á að störf ljósmæðra verði endurmetin miðað við þá miklu ábyrgð sem þær gegna.

Ríkisstjórnarflokkarnir hafa þá stefnu að jafna óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu. Semja þarf um kjör handa ljósmæðrum sem standast samanburð við sambærilegar karlastéttir. Það gæfi íslenskum konum von um að jafnréttismarkmið ríkisstjórnarinnar stæðust," segir í ályktuninni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert