Styðja ljósmæður

Svæfingahjúkrunarfræðingar og skurðhjúkrunarfræðingar á Landspítalanum í Fossvogi lýsa yfir fullum stuðningi við baráttu ljósmæðra, í yfirlýsingu sem þær hafa sent frá sér. 

„Réttlát leiðrétting á launakjörum þar sem menntun er metin að verðleikum er nauðsynleg til að tryggja áfram góða heilbrigðisþjónustu og nýliðun í þeim stéttum sem við hana starfa.  Við skorum á stjórnvöld að efna loforð stjórnarsáttmálans um leiðréttingu á kynbundnum launamun."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert