Gæsum rænt fyrir framan nefið á veiðimönnum

Grágæsir á flugi.
Grágæsir á flugi.

Þrjár gæsaskyttur, sem voru á veiðum á Fljótsdalsheiði fyrir skemmstu urðu fyrir því að hluta fengsins var rænt hálflifandi fyrir framan nefið á þeim. Þetta kemur fram á fréttavefnum Austurglugganum.

„Við vorum búnir að skríða á eftir gæsahópnum í kortér, skutum eina og hún datt nánast dauð niður á veginn. Þar kom að stór jeppi, ökumaðurinn stoppaði, snaraðist út, snéri gæsina úr hálsliðnum og henti henni inn í bílinn,“ segir Bjarki Borgþórsson, sem var á veiðum ásamt Ívari Karli Hafliðasyni og Stefáni Erni Jónssyni.

„Við hrópuðum og kölluðum að manninum að þetta væri okkar gæs en hann lét sem hann heyrði ekki í okkur. Ég vona að gæsin standi í honum!"

Austurglugginn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert