Engar viðræður um sameiningu
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur MBL Sjónvarpi. tka@mbl.isRáðherrar ríkisstjórnarinnar fullyrtu eftir ríkisstjórnarfund í morgun að engar formlegar viðræður væru við eigendur Landsbankans um sameiningu hans og Glitnis. Björgólfur Thor Björgólfsson og bankastjórar Landsbankans voru á fundi í stjórnarráðinu í gærkvöldi.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherrra segir að sameining Landsbankans og Glitnis hefði hvergi verið rædd með formlegum hætti. Hann segir að mönnum sé frjálst að ræða hvað sem er við hvern sem er en formlegar viðræður hafi hvergi farið fram.
Geir H. Haarde tók í sama streng og sagðist iðulega hitta Björgólf Thor Björgólfsson þegar hann væri á landinu. Þeir hefðu ákveðið að nota tækifærið í gærkvöldi enda ekki óeðlilegt í ljósi þeirra breytinga sem hefðu orðið á markaðnum. Í morgun hefði hann átt símafund með fulltrúum allra bankanna. Hann sagðist ekki ætla að svara fyrir áhuga Björgólfs Thors á sameiningu Glitnis og Landsbanka. Hann gerði ráð fyrir því að þeir hefðu vissan áhuga en ætlaði ekki að fara nánar út í það.
Geir H. Haarde sagði að ástandið væri ótryggt og það væri uppnám á alþjóðlegum fjármálamörkuðum eftir að bandaríska fulltrúadeildin felldi björgunarpakka ríkisstjórnarinnar til handa fjármálakerfinu þar í landi. Hann sagðist telja það fullkomið ábyrgðarleysi að fella málið en vonandi tækist að leysa fjármálamarkaðinn úr þessari prísund síðar í vikunni. Hinsvegar tækist vonandi að leysa það mál síðar í vikunni.
Geir sagði að ánægjulegt væri að sjá í dag að íslensku bankarnir væru ekki að verða fyrir miklum áhrifum af þessu og gengi Glitnis væri hærra en menn hefðu talið eftir atburðina í gær. Hann sagðist ekki ansa yfirlýsingum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að yfirtaka Glitnis hefði verið bankarán.
Bloggað um fréttina
-
Ingibjörg Magnúsdóttir Búið að ákveða allt fyrirfram? - Samsæriskenningar víða -
Jón Agnar Ólason Í eina sæng innan viku - sanniði til. -
Kristbjörg Þórisdóttir Hvað skiptir máli? -
Hallur Magnússon #9541 Er orð að marka ráðherrana eftir þjóðnýtingarferli helgarinnar? -
Markús frá Djúpalæk Nýtt logo og nafnabreyting hjá Glitni!
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. september 2008, Innlent Landsbankamenn ræddu við Geir
- Miðvikudagur, 1. október 2008, Innlent Ræddu þeir samkomulag eða ekki?
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Þurfa að leggja fram tryggingu fyrir málskostnaði
- Þriðjudagur, 28. júlí 2009, Innlent Björgólfsfeðgar segja frétt Stöðvar 2 ranga
- Fimmtudagur, 9. apríl 2009, Innlent Feðgunum ekki verið stefnt
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































