Auknar álögur á íbúa Grimsby

Skattgreiðendur í Norð-Austur Lincolnskíri þurfa að greiða reikning upp á 16 þúsund pund aukalega vegna skýrslu sem unnin var um fjárfestingar sveitarfélagsins í íslensku bankanna.  Þetta kemur fram á vefnum This is Grimsby í dag.  Alls átti héraðið sjö milljónir punda inn á reikningum íslensku bankanna.

Í nýrri skýrslu, sem kostar skattgreiðendur tæplega 16 þúsund pund, eru fjárfestingarnar harðlega gagnrýndar en á vef This is Grimsby kemur fram að fjárfest hafi verið á Íslandi þrátt fyrir vanda bankanna hér.


mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK