Dæmdur fyrir að kýla konu í andlitið

Héraðsdómur Austurlands hefur sakfellt karlmann af ákæru fyrir líkamsárás með því að kýla konu í andlitið með þeim afleiðingum að hún missti sjón um tíma. Maðurinn var dæmdur í 70 þúsund kr. sekt og til að greiða konunni 184 þúsund í bætur.

Atvikið átti sér stað á balli á Egilsstöðum í febrúar sl. Þar átti maðurinn í átökum við annan mann og sló frá sér en fast höggið lenti á konunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert