Kreppuskjól í Kringlunni

mbl.is/Kristinn

Mikill fjöldi manna lagði leið sína á tilboðsdaga í Kringlunni yfir helgina þrátt fyrir efnahagslegu hörmungatíðindin sem yfir þjóðina hafa dunið að undanförnu.

„Ég segi nú bara allt fínt hérna í dag,“ sagði Þórhildur Jónsdóttir þegar blaðamaður sveif á hana við fyrir utan búð eina í Kringlunni og spurði hvernig hún hefði það í ljósi tíðinda síðustu daga.

Hún kvaðst ekki verða vör við annan tíðaranda innan veggja verslunarmiðstöðvarinnar frá fyrri tíð. „Nei, alls ekki. Það finnst mér ekki.“

Þórhildur sagði erindi sitt í Kringluna þennan sunnudaginn ekki vera að nýta tækifærið áður en allt verðlag myndi hækka. „Nei, nei. Maður er bara að nýta þessi tilboð sem eru hérna í búðunum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert