Ráðningarsamingur við Friðrik framlengdur

Friðrik Sophusson.

Friðrik Sophusson. mbl.is/Ásdís

Ráðningarsamningur Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, hefur verið framlengdur til allt að tveggja ára.  Í ljósi gjörbreyttra aðstæðna fór stjórn fyrirtækisins þess á leit við Friðrik að hann héldi áfram störfum sem forstjóri og var sú niðurstaða samþykkt samhljóða af stjórn Landsvirkjunar.

Í sérstakri bókun um ákvörðunina er vísað til efnahagsástandsins í landinu nú um stundir:

„Landsvirkjun gegnir afar þýðingarmiklu hlutverki í uppbyggingu og rekstri framleiðslustarfseminnar í landinu og vegur rekstur fyrirtækisins þungt í fjármálum þjóðarinnar.  Í ljósi aðstæðna, sem nú eru uppi í efnahagsmálum og þjóðmálum, telur stjórn Landsvirkjunar brýnt að tryggja festu og samfellu í stjórn fyrirtækisins.  Við þessar aðstæður hefur orðið að samkomulagi milli stjórnar og núverandi forstjóra að framlengja gildandi ráðningarsamning um allt að tvö ár í samræmi við ákvæði 8. gr. samningsins.“

Friðrik Sophusson hefur verið forstjóri Landsvirkjunar frá árinu 1999.  Síðastliðið sumar tilkynnti hann stjórn áform sín um að láta af störfum í lok árs 2008.  Við þau tímamót leit stjórn Landsvirkjunar til þess, að framundan væri viðamikil undirbúningsvinna við endurmat á stefnu fyrirtækisins svo og endurskoðun á rekstrarfyrirkomulagi.  Færi vel á því að nýr forstjóri hæfi undirbúning þeirra verka.

Starf forstjóra var auglýst laust til umsóknar 1. september 2008 og var umsóknarfrestur síðan framlengdur til 26. september síðastliðinn.  Alls bárust 55 umsóknir og var fjöldi hæfra einstaklinga í hópi umsækjenda.  Ráðningarferlið var í eðlilegum farvegi og höfðu nokkrir umsækjenda verið kallaðir í viðtal, þegar aðstæður í þjóðfélaginu breyttust á svipstundu á þann veg, að augljóst var að meginviðfangsefni stjórnar og forstjóra næstu misseri yrði að tryggja festu og stöðugleika í rekstri sem og trausta eftirfylgni við undirbúning fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda.

Við þessar aðstæður telur stjórn Landsvirkjunar afar brýnt að viðhalda traustum samskiptum við helstu viðskiptavini og lánardrottna fyrirtækisins.  Þar skipta persónuleg tengsl og góð viðskiptasambönd meginmáli.  Að vel athuguðu máli þótti stjórn Landsvirkjunar því sérstök efni standa til þess að fara fram á það við núverandi forstjóra að hann gæfi kost á framlengingu gildandi ráðningarsamnings.  Á þessum tíma er mikilvægt að nýta áfram reynslu og þekkingu núverandi forstjóra og telur stjórn Landsvirkjunar það best þjóna hagsmunum fyrirtækisins við úrlausn þeirra verkefna, sem nú eru framundan."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gasgrill
Til sölu gasgrill með hitaplötu. Tilboð. Uppl. í síma 863-7512...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...