Handtekinn grunaður um árás

mbl.is/Júlíus

Lögreglan hefur handtekið einn karlmann sem er grunaður um aðild að alvarlegri líkamsárás sem var gerð í húsi við Hverfisgötu í gærkvöldi. Að sögn lögreglu réðust fjórir til fimm menn til inngöngu inn í íbúðina og börðu þeir fjóra íbúa hennar með bareflum. Hinna árásarmannanna er nú leitað.

Tveir þeirra sem ráðist var á, voru fluttir á slysadeild með höfuðáverka. Aðrir tveir vildu ekki þiggja læknisaðstoð.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert