Setur spurningamerki við spá Seðlabankans

Seðlabankinn dregur upp of dökka mynd í spá um horfur í efnahagsmálum að mati forsætisráðherra.  Fjármálaráðuneytið er með aðra spá í undirbúningi.  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir  segir að útlitið sé svart en það þurfi að horfa á hlutina eins og þeir eru.  Geir H. Haarde  telur að næsta ár verði mjög erfitt en það fari að rofa til í ársbyrjun 2010. Hann setur spurningamerki við tíu prósenta atvinnuleysi í lok næsta árs. Spá Seðlabankans miðar við það að lánið frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum gangi eftir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert