Voru látnir hreinsa veggjakrotið

mbl.is/Brynjar Gauti

Krotað var á veggi hjólageymlu í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Veggjakrotararnir náðust en um var að ræða þrjá pilta, 13-14 ára, og játuðu þeir allir aðild sína að málinu en tjónið var nokkurt, að sögn lögreglunnar.

Sættir náðust og fólust þær í því að piltarnir máluðu sjálfur yfir krotið. Málsaðilar voru ánægðir með þá niðurstöðu en bæði tjónþolarnir og forráðamenn piltanna töldu það réttláta refsingu fyrir athæfið.

Lögreglan segir, að veggjakrotararnir sjálfir hafi komið á svæðisstöðina í Breiðholti í gær og lagt fram ljósmyndir af nýmálaðri hjólageymslu, sem nú sé tandurhrein og fín og laus við allt veggjakrot. Með þessu sönnuðu piltarnir að þeir hefðu staðið við sinn hlut en málinu telst nú vera lokið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert