Keypti eigin vél

Karlmaður, sem keypti notaða bílvél nýlega í Hveragerði, komst að því þegar hann fór að skoða vélina betur, að um væri að ræða vél sem stolið var frá honum sjálfum fyrir nokkrum árum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er málið  í rannsókn. 

Annar karlmaður , sem handtekinn var í síðustu viku vegna innbrots í Hveragerði, viðurkenndi innbrotið og að hafa stolið verkfærum og munum fyrir um nærri eina milljón króna. 

Í framhaldi þess var gerð húsleit hjá manninum í Hafnarfirði og fundust þar nýir hjólbarðar að verðmæti um 700 þúsund krónur sem mun hafa verið stolið af dekkjalager á höfuðborgarsvæðinu.  Auk þess voru þar tvö torfæruvélhjól sem grunur er um að hafi verið stolin. 

Maðurinn var látinn laus að yfirheyrslu lokinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert