Ræðir framkvæmd fríverslunarsamnings

Jørgen Niclasen utanríkisráðherra Færeyja
Jørgen Niclasen utanríkisráðherra Færeyja Þorkell Þorkelsson

Jørgen Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja, kemur ásamt eiginkonu sinni til Íslands í dag í opinbera heimsókn í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra.

Á morgun mun Niclasen eiga fund með utanríkisráðherra Íslands, samkvæmt frétt frá utanríkisráðuneytinu. Þar verður rætt um framkvæmd og þróun fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja, ,,Hoyvíkursamningsins", á þeim tveimur árum sem nú eru liðin frá gildistöku hans. Ennfremur verður rætt um gjaldeyrislán Færeyja til Íslands, stöðuna í efnahagsmálum og samstarf landanna, m.a. á sviði heilbrigðismála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert