Icesave meginefni fundar ráðherra
Meginefni fundar Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, með Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, í Lundúnum 2. september, var um það að æskilegt væri að færa innstæðureikninga hjá útibúi Landsbankans í London í breskt dótturfélag.
Þetta kemur fram í svari Björgvins við fyrirspurn Sivjar Friðleifssdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi, þar sem hún spurði um efni fundarins.
Í svarinu segir, að á fundinum hafi ráðherrarnir rætt almennt um aðstæður á mörkuðum og viðskipti landanna. Meginefni fundarins hafi verið um að æskilegt væri að færa innstæðureikninga hjá útibúi Landsbankans í London í breskt dótturfélag. Bresk stjórnvöld höfðu unnið að því um nokkurt skeið ásamt íslenskum stjórnvöldum að fá Landsbankann til að flytja innstæður svokallaðra Icesave-reikninga úr útibúinu í breskt dótturfélag.
„Bresk stjórnvöld gerðu mjög stífar kröfur um flutning eigna Landsbankans til Bretlands og um tímamörk fyrir eignaflutninginn. Tilgangurinn með fundinum var að fara fram á að bresk stjórnvöld heimiluðu að innlánsreikningarnir yrðu fluttir í breskt dótturfélag strax, en að Landsbankanum yrði gefinn eðlilegur frestur til skipulegs flutnings á eignum á móti innstæðum þannig að fjármögnunarsamningar bankans röskuðust sem minnst," segir í svarinu.
Í tilkynningu, sem viðskiptaráðuneytið sendi út eftir fundinn, var ekki minnst á Icesave reikninga. Þar segir hins vegar, að á fundinum
hafi ráðherrarnir rætt góð samskipti þjóðanna á sviði fjármálamarkaðar. „Íslensku
bankarnir hafa mikla starfsemi á Bretlandi og er landið stærsti
markaður íslensku bankanna, utan Íslands. Einnig ræddu ráðherrarnir
hvaða lærdóm megi draga af aðstæðum á mörkuðum undanfarna mánuði," segir í tilkynningunni, sem send var út 3. september.
Siv óskaði eftir því að minnisblað um fundinn verði birt, en í svarinu segir að ráðherra hafi ekki tekið saman formlegt minnisblað um fundinn annað en það sem fram komi fram að ofan um efni fundarins.
Auk Björgvins sóttu fundinn af Íslands hálfu Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, ráðuneytisstjórinn í fjármálaráðuneytinu, Jón Sigurðsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu og aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Þór Jónsson Að vona það besta! -
Torfi Kristján Stefánsson Seldi ekki Baldur eftir þennan fund?
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Innlent Yfirlýsing viðskiptaráðherra
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Ráðuneytisstjóri hugsanlega innherji
- Fimmtudagur, 20. nóvember 2008, Innlent Almenningur vissi ekkert um fundinn
- Laugardagur, 17. október 2009, Innlent Hlutabréfasala ráðuneytisstjóra rannsökuð
- Miðvikudagur, 8. október 2008, Innlent Eignir standi undir Icesave
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































