Allir mótmælendurnir lausir

Lögreglumenn fara á brott með einn mótmælendanna við Alþingishúsið í …
Lögreglumenn fara á brott með einn mótmælendanna við Alþingishúsið í dag. mbl.is/Júlíus

Allir mótmælendurnir sem voru handteknir í Alþingishúsinu í dag eru nú lausir úr haldi lögreglu, skv. upplýsingum lögreglunnar.

Sjö voru færðir til skýrslutöku en fólkið, sex karlar og ein kona, er flest á þrítugsaldri.

Ekki fóru allir mótmælendurnir út úr Alþingishúsinu með góðu en einn þeirra hafði sig sýnu mest í frammi og beit tvo lögreglumenn og sparkaði í þann þriðja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert