Samningar skulu standa

Sturla Jónsson og fleiri bílstjórar á fundi með Halldóri Jörgenssyni, …
Sturla Jónsson og fleiri bílstjórar á fundi með Halldóri Jörgenssyni, forstjóra Lýsingar. mbl.is/Árni Sæberg

Ingólfur Þorsteinsson, innheimtustjóri Lýsingar hf., segir það misskilning hjá Sturlu Jónssyni vörubílstjóra, sem farið hefur fyrir mótmælum bílstjóra vegna innheimtuaðgerða lánastofnanna, að Lýsing færi áætlaðan viðgerðarkostnað yfir á leigutaka „sem hreina viðbót við að það að samningi sé rift“, eins og orðrétt segir í yfirlýsingu frá Lýsingu. Samningar sem gerðir hafa verið  séu sá leiðarvísir sem Lýsing verði að fara eftir.

Sturla fór ásamt öðrum bílstjórum niður í höfuðstöðvar Lýsingar niður í Ármúla fyrr í dag og fundaði þar með Halldóri Jörgenssyni, forstjóra Lýsingar. Sturla vildi meina að Lýsing hefði beitt óheiðarlegum aðferðum við inniheimtu á bílum sem ekki hafði verið greitt af í tvo mánuði. Of mikill kostnaður hefði verið færður yfir á bílstjóra sem eðlilegt hefði verið að lenti ekki á þeim eða metinn með öðrum hætti. Það var meðal annars viðhaldskostnaður.

Ingólfur segir Lýsingu starfa eftir þeim samningum sem fyrirtækið geri við viðskiptavini sína.

Yfirlýsing Ingólfs, fyrir hönd Lýsingar, er eftirfarandi:
 
1)      Það að Lýsing hf. færi áætlaðan viðgerðarkostnað yfir á leigutaka sem hreina viðbót við að það að samningi sé rift er byggt á misskilningi.  Þegar leigutaki skrifar undir samning hjá Lýsingu hf. samþykkir hann ákvæði þess efnis að honum beri að halda hinu leigða vel við og láta gera við allar skemmdir og bilanir jafnóðum og þær verða, jafnframt því að fylgja reglum framleiðanda/seljanda við notkun leigumunar.  Sé samningi við leigutaka sagt upp, sem oftast verður vegna greiðsludráttar leigutaka, hefur Lýsing hf. heimild til að fara með leigumun í sérstaka söluskoðun eftir að honum hefur verið skilað, hjá umboðsaðila, á skoðunarstöð eða á viðurkenndu verkstæði þar sem metinn er kostnaður við að koma honum í það ástand sem samningur og þjónustubók gera ráð fyrir.  Þessi áætlaði viðgerðarkostnaður kemur til lækkunar á því verðmati sem Lýsing hf. metur leigumun á við lokauppgjör.
2)      Það að Lýsing hf. sé að leysa til sín leigumuni þegar ekki hefur verið greitt af samningum í einn til tvo mánuði er ekki rétt.  Lýsing hf. reynir eftir fremsta megni að finna leiðir með sínum viðskiptamönnum svo þeir geti uppfyllt gerða samninga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert