Fíkniefni á leið norður

Lögreglan í Borgarfirði og Dölum lagði í gærkvöldi hald á 36 grömm af ætluðu amfetamíni. Efnin fundust við leit í bifreið sem var á norðurleið í Borgarfirðinum. Tveir menn voru handteknir og er annar þeirra grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að þessu máli var unnið í samvinnu við fíkniefnateymi Norðurlands en það skipa lögreglumenn frá Akureyri, Blönduósi og Sauðárkróki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert