Friður og samkennd á Ráðhústorgi

Fólkið myndaði hring á Ráðhústorginu.
Fólkið myndaði hring á Ráðhústorginu.

Á áttunda tug manna hugleiddu frið og samkennd á Ráðhústorginu á Akureyri í dag, að því er segir í fréttatilkynningu. Var ákveðið að gera þetta í stað hefðbundinna mótmæla sem hafa verið á laugardögum undanfarnar vikur.

Undanfarna mánuði hefur hópur fólks hist fyrir framan Samkomuhúsið og gengið niður á Ráðhústorg undir yfirskriftinni „Virkjum lýðræðið“, að því er segir í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum. „Þar hafa ýmsir tekið til máls en í dag var ákveðið að hugleiða í stað þess að láta gamminn geysa.“

Tókust menn í hendur, mynduðu hring og hugleiddu í 10 mínútur á torginu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert