Frekar róleg nótt á slysadeild

Frá slysadeild Landspítala
Frá slysadeild Landspítala

Um 70 manns sóttu slysadeild Landsspítala - Háskólasjúkrahúss í nótt á fyrstu klukkustundum nýs árs. Að sögn vakthafandi læknis var nýársnóttin frekar í rólegri kantinum ef hitt miðað við áramót. Eitthvað bar á áverkum eftir slys við meðferð flugelda og jafnframt eftir pústra við skemmtanahald.

Engin stórvægileg mál komu hinsvegar upp að sögn læknis, meiðslin voru öll minniháttar. Undir morgun hægðist á umferð um slysadeildina en fór aftur að aukast fram eftir degi og hefur verið með hefðbundnu sniði í dag, á fyrsta degi nýs árs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert