Utanríkisráðherra í geislameðferð

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/Ómar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer í geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í næstu viku, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að sjúkrahúsið hafi yfir að ráða tækjum sem ekki eru til hér á landi.

Um er að ræða lokahnykk á meðferð sem hófst í lok september sl. þegar Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð til að fjarlægja heilaæxli.
Ráðherra heldur utan á fimmtudag en gert er ráð fyrir að hún verði 3 til 5 daga frá vinnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert