Hægt að frysta bílalán áfram

Fjármögnunarfélagið Avant býður viðskiptavinum sínum, að sækja um frystingu gengistryggðra bílalána eða framlengja frystingu um fjóra mánuði til viðbótar þeim 2-4 mánuðum sem þegar hafa verið veittir. Ekki verður tekið sérstakt gjald fyrir frystinguna eða framlengingu hennar. 

Sæki viðskiptavinir Avant um frystingu er afborgunum af höfuðstól  frestað en áfram eru greiddir vextir á gjalddaga. Með þessu er bílasamningurinn lengdur um þann tíma sem nemur fjölda þeirra afborgana sem frestað er.

Fjármögnunarfélagið Lýsing hefur boðið viðskiptavinum sínum að sækja um að greiða 50% af mánaðargreiðslu af gengistryggðum lánum í þrjá mánuði gegn 7 þúsund króna gjaldi.  Þeir sem hafa áður hafa fengið samningi breytt geta óskað eftir 75% greiðslu næstu 3 mánuði gegn 5 þúsund króna gjaldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert