Dettifossvegur lykilatriði

mbl.is/Birkir Fanndal

Stjórn Markaðsráðs Þingeyinga hvetur stjórnvöld til þess standa við gefin loforð um áframhaldandi framkvæmdir við Dettifossveg. Í ályktun stjórnarinnar frá í gær segir að vegurinn sé lykilatriði í þróun og uppbyggingu á ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum.

Á síðustu árum hafi hún farið vaxandi sem atvinnugrein og mikilvægt sé að markmið hennar um lengingu háannar og fjölgun ferðamanna nái fram að ganga m.t.t. byggðaþróunar og atvinnumála.

„Þá er það í hrópandi ósamræmi við aðgerðir og áætlanir ríkisins  ef innviðir nýstofnaðs Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs Evrópu geta ekki þjónað sínu hlutverki,“ segir í ályktun stjórnar Markaðsráðs Þingeyinga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert