Sex sækja um Laufásprestakall

Laufáskirkja.
Laufáskirkja. mbl.is/Sigurður Ægisson

Sex umsóknir bárust um embætti sóknarprests í Laufásprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi, fjórir karlar og tvær konur. Prestur hefur ekki verið með aðsetur í Laufási síðan séra Pétur Þórarinsson lést árið 2007.

Umsækjendur eru:

Séra Bolli Pétur Bollason

Séra Hildur Inga Rúnarsdóttir 

Cand. theol. Sólveig Jónsdóttir

Cand. theol. Stefán Karlsson 

Cand. theol. Sveinbjörn Dagnýjarson 

Cand. theol. Ævar Kjartansson 

Embættið veitist frá 1. mars 2009.  

Valnefnd velur sóknarprest. Hún er skipuð prófasti Þingeyjarprófastsdæmis, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og níu fulltrúum prestakalls. Biskup Íslands skipar þann í embættið til fimm ára sem valnefnd hefur náð samstöðu um.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert