Tveir handteknir við Nordica

Hópur fólks fyrir utan Hilton Nordica hótelið í kvöld.
Hópur fólks fyrir utan Hilton Nordica hótelið í kvöld. mbl.is/júlíus

Lögreglan handtók fyrir nokkrum mínútum tvo mótmælendur við Hilton Nordica eftir smávægilegar stympingar. Um það bil jafn margir eru í hvorri fylkingu; mótmælendur hátt í 70 og lögreglumennirnir álíka margir. Innandyra fer fram opnunarmóttaka fyrir 300 gesti málstofu Atlantshafsbandalagsins (NATO).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert