Danskir bílar hluti af staðalútbúnaði lögreglumanna

Lögreglumenn við Alþingishúsið í janúar.
Lögreglumenn við Alþingishúsið í janúar. mbl.is/Golli

Landssamband lögreglumanna segir að bílar, sem kannað var með hjá danska ríkislögreglustjóranum hvort hægt væri að fá að láni, séu hluti af staðalbúnaði lögreglu í hvaða landi sem er. 

Bifreiðunum sé ætlað að veita lögreglumönnum skjól gegn árásum.  „Sú staðreynd að slíkar bifreiðar skuli ekki vera til hér á landi lýsir hvorutveggja því rólyndisástandi sem betur fer hefur ríkt á Íslandi í gegnum aldir en einnig og á sama tíma metnaðarleysi fjárveitingavaldsins gagnvart lögreglu þessa lands og öryggi hvorutveggja borgara landsins og lögreglumanna," segir í yfirlýsingunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert