Ferðaþjónusta bænda hlýtur starfsmenntaviðurkenningu SAF

Össur Skarphéðinsson, ferðamálaráðherra, lengst til hægri, Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri FB, …
Össur Skarphéðinsson, ferðamálaráðherra, lengst til hægri, Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri FB, Berglind Ásgeirsdóttir, gæðastjóri FB, Marteinn Njálsson formaður FB og María Guðmundsdóttir, upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF. mbl.is

 Ferðaþjónusta bænda hlaut í dag starfsmenntaviðurkenningu Samtaka ferðaþjónustunnar, þegar þau voru veitt öðru sinni, á Degi menntunar ferðaþjónustu.

„ Ferðaþjónusta bænda, sem hlutu verðlaunin, hafa með skýrri sýn lagt áherslu á mikilvægi starfsmenntunar í allri starfsemi sinni með það að markmiði að auka starfsánægju félaga í samtökunum og síðast en ekki síst til að ná samkeppnisforskoti og auka arðsemi í rekstri fyrirtækisins með aukinni starfsmenntun,“ segir í fréttatilkynningu.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að einkum hafi eftirfarandi legið til grundvallar ákvörðunar hennar:

Góð nýting allra möguleika til markvissrar stefnu í menntunarmálum, m.a. með þjónustuvef ferðaþjónustbænda, með rafrænni handbók bænda, fjölbreytilegum námskeiðum og fræðsludögum í tengslum við uppskeruhátíð samtakanna

Fyrirtækið hefur náð ákveðnu samkeppnisforskoti með beinum hætti gegnum markvissa símenntunarstefnu

Markviss stefna fyrirtækisins og fast verklag við að innleiða vottunarferlið Green Globe þar sem umhverfis- og gæðamál eru höfð að leiðarljósi

Nýting á fjármagni frá Leonardó- mannaskiptaverkefninu til nýsköpunar

Samvinna við Hólaskóla með markvissum hætti um að efla gæði og þjónustu í ferðaþjónustu í dreifbýli með fræðslu

Mat á frammistöðu ferðaþjónustubænda í samstarfsverkefni við Better Business um það sem vel er gert og betur má fara og niðurstöður nýttar til að vanda enn betur þjónustu og aðbúnað gesta

Í stefnu SAF á sviði fræðslu og menntamála kemur fram að eitt af höfuðmarkmiðum sé að bæta arðsemi og samkeppnishæfni fyrirtækja í ferðaþjónustu og að hafa áhrif á gildismat og viðhorf stjórnenda og starfsfólks til menntunar, símenntunar og þjálfunar. Dagur menntunar í ferðaþjónustu er liður í ofangreindum markmiðum þ.e. að vekja athygli atvinnurekanda á mikilvægi menntunar, símenntunar og þjálfunar starfsfólks.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert