Vilja fresta seðlabankaumræðu
Samþykkt var á fundi viðskiptanefndar Alþingis í dag, að óska eftir því að þriðju umræðu um seðlabankafrumvarpið verði frestað þar til nefnd á vegum Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögur um breytingar á stjórnsýslu eftirlitsstofnana á fjármálamarkaði. Til stóð að þriðja umræða færi fram í dag.
Nefnd Evrópusambandsins leggur fram tillögur sínar á miðvikudag. Sjálfstæðismenn í viðskiptanefnd lögðu á fundi hennar í dag til að fresta lokaumræðu um frumvarpið þar til tillögur ESB-nefndarinnar liggja fyrir. Höskuldur Þórhallsson, annar þingmanna Framsóknarflokksins í viðskiptanefnd, greiddi atkvæði með tillögunni en hinn, Birkir Jón Jónsson, greiddi atkvæði gegn henni eins og þingmenn VG og Samfylkingar.
Að sögn Birgis Ármannssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, kom sérfræðingur fjárfestingarbankans JP Morgan í Lundúnum á fund viðskiptanefndar í morgun og upplýsti hann, að nefnd Evrópusambandsins myndi kynna niðurstöður sínar á miðvikudag. Í ljósi þess að breytingar á lögum um seðlabanka eru mjög í forgrunni starfs þessarar nefndar hefðu sjálfstæðismenn lagt til að lokaafgreiðslu seðlabankafrumvarpsins yrði frestað svo hægt væri að meta að hvaða leyti nýju tillögurnar hefðu áhrif á íslenska seðlabankans.
Önnur umræða um seðlabankafrumvarpið fór fram á Alþingi á föstudag en frumvarpinu var vísað til viðskiptanefndar á ný að ósk sjálfstæðismanna. Birgir sagði, að ástæða þess væri sú, að þeim þætti málið ekki nægilega þroskað og og nálgunin í frumvarpinu væru of þröng og snérist einkum um skipurit bankans. Eðlilegt sé að skoða hvaða breytingar þurfi að gera á lagaumhverfi Seðlabankans í víðara samhengi.
Bloggað um fréttina
-
Sigrún Jónsdóttir Prófkjörsbaráttan komin á fullt í þingsölum.... -
Ásgeir Kristinn Lárusson Er Framsókn besta vörnin? -
Smári Jökull Jónsson Íhaldið og Framsókn -
Vilborg Traustadóttir Skynsamlegt -
Haukur Nikulásson Allir sem einn fórna þeir sér fyrir Davíð -
Vilhjálmur Árnason J.P. Morgan og Evrópusambandið. -
Jenný Anna Baldursdóttir Alltaf til skaða? -
Guðmundur Óli Scheving Ætla svo þessir aumingjar að bjóða sig fram !!!! -
Magnús Geir Guðmundsson Athygli skal vakin á því.. -
Ingólfur H Þorleifsson Það sem koma skal. -
Heimir L Fjeldsted Frestur er á illu bestur -
Haukur Már Haraldsson Ríkisstjórn í gislingu
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Innlent Seðlabankalög á dagskrá þingsins í dag
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Innlent Ekki rætt um Seðlabanka
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Saka hvor annan um misskilning
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Innlent Viðskiptanefnd fundar
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Innlent Framsókn skekur ríkisstjórnina
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































