Tveir milljarðar króna í bætur

mbl.is/Kristinn

Vinnumálastofnun greiðir út atvinnuleysistryggingar í dag, tæpa 2 milljarða króna, til um 14 þúsund einstaklinga. Greitt er fyrir tímabilið 20. janúar – 19. febrúar 2009.Alls eru 16.411 skráðir atvinnulausir á lista Vinnumálastofnunar í dag, 10.444 karlar og 5.967 konur.

Eru umsækjendur um atvinnuleysisbætur beðnir um að sýna því skilning að töluvert álag verður að öllum líkindum á símakerfi Greiðslustofunnar í dag.

Vinnumálastofnun bendir umsækjendum á að það er ekki öruggt að allir launaseðlar nái að skila sér í hús í dag þannig að til þess að fylgjast með hvort greiðsla hefur borist er líklega best að fylgjast með bankareikningnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert