Formannskjör Samtaka atvinnulífsins hafið

Þór Sigfússon
Þór Sigfússon Sverrir Vilhelmsson

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Kosningin hófst í morgun en Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku á aðalfundi  SA þann 18. apríl 2008.

Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Rafrænni kosningu lýkur klukkan 12 þann 22. apríl á aðalfundi samtakanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert