Milljónatjón hjá grásleppuveiðimönnum

Netin komin á bryggju á Húsavík
Netin komin á bryggju á Húsavík

Hún var ömurleg aðkoman hjá grásleppuveiðimönnum um nýliðna helgi þegar loks var hægt að vitja netanna eftir langvinna ótíð. Þrátt fyrir að netin lægju á meira en 30 faðma dýpi sluppu þau ekki. Hafrótið náði þar niður og þyrlaði grjóti og öðrum ófögnuði af botninum og lamdi í sundur. Einnig hefði fiskur lent í netunum og vafið þau þannig upp að brimið vann enn betur á þeim og gerði þau með öllu ónothæf.

„Það er grátlegt að vera kominn í land með ónýt net eftir aðeins 3 vikna notkun. Góð afkoma síðastliðins árs er fokin út í veður og vind í bókstaflegri merkingu. Það er harla ólíklegt að þau örfáu net sem sluppu geri mönnum kleift að jafna þann reikning. Ætli þessi bræla skráist ekki í sögubækur sem „stóra milljónabrælan“. Aldrei þessu vant blasti við okkur nægur markaður og hærri verð en menn hafa nokkru sinni séð,  segir Einar Sigurðsson grásleppukarl á Raufarhöfn í viðtali við vef Landssambands smábátaeigenda.

Að sögn Gunnars Gunnarssonar á Húsavík eru grásleppuveiðimenn þar sammála um að fara þarf allt aftur til ársins 1984, aldarfjórðung, til að finna hamfarir sem þessar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert