Heildaraflinn eykst um 14,2%
mbl.is
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 9,8% meiri en í mars 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 14,2% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
Aflinn í mars 2009 var 108.612 tonn samanborið við 169.690 tonn í sama mánuði árið áður, samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Botnfiskafli jókst um rúm 6.000 tonn frá mars 2008 og nam 60.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn 27.000 tonn og jókst um tæp 5.000 tonn og karfaaflinn rúm 11.000 sem var aukning um 1.300 tonn milli ára. Ýsuaflinn stóð hins vegar nokkurn vegin í stað milli ára í tonnum talið og nam um 11.600 tonnum, en ufsaaflinn dróst saman um 1.100 tonn samanborið við mars 2008 og nam um 5.000 tonnum.
Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.000 tonnum sem er um 68.000 tonnum minni afli en í mars 2008. Samdrátt í uppsjávarafla má rekja til þess að engin loðna var veidd nú í marsmánuði, samanborið við tæplega 96.000 tonna veiði árið áður. Hins vegar var um 22.000 tonna aukning í veiði á kolmunna á milli ára og var heildarafli kolmunna um 39.000 tonn. Auk þess veiddust í mars rúm 5.000 tonn af gulldeplu og 500 tonn af síld.
Flatfiskaflinn var rúm 2.500 tonn í mars og jókst um tæp 800 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 444 tonnum samanborið við 728 tonna afla í mars 2008.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Innlent Aflinn meiri en verðminni
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Heildarafli eykst um 55%
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Meira veitt og aukin verðmæti
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Heildaraflinn jókst um 27%
- Mánudagur, 15. september 2008, Innlent Stærsti hluti aflans síld og makríll
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































