Þrír slasaðir á Grandagarði

Lögreglan að störfum á slysstaðnum í kvöld.
Lögreglan að störfum á slysstaðnum í kvöld. mbl.is/Jakob Fannar

Þrír slösuðust í hörðum árekstri sem varð á Grandagarði í Reykjavík rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld, þar ef einn með töluverða áverka. Tækjabíll slökkviliðsins fór á staðinn þar sem klippa þurfti bíl til að ná fólki út úr honum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um tildrög árekstursins sem varð í nágrenni við Grandagarð 8.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert