Áskorun um endurskoðun ákvörðunar
Landspítalinn-háskólasjúkrahús mbl.is/ÞÖK
Stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar sameiningar á bráðamóttökum Landspítala. Hjúkrunarráð telur verulegar líkur á að breytingin muni leiða til skertrar þjónustu við sjúklinga og stefna öryggi ákveðinna hópa þeirra í hættu.
Hjúkrunarráðið telur einni hætt við að þeim árangri sem náðst hefur í meðferð ákveðinna hópa sjúklinga sé ógnað. Þetta kemur fram í ályktun hjúkrunarráðsins. Þar segir einnig:
„Hópar fagfólks á Landspítala unnu nýverið áhættumat vegna fyrirhugaðra breytinga og lögðu drög að nýjum verkferlum vegna móttöku sjúklinga á sameinaðri bráðamóttöku. Áhersla var lögð á að skoða áhrif þessara breytinga á öryggi sjúklinga og þjónustu við þá. Niðurstöður allra hópanna voru að við sameininguna skapist mikill kostnaður sem leggist á önnur svið spítalans en slysa og bráðasvið ef tryggja á öryggi og viðhalda sömu þjónustu. Fjárhagslegur ávinningur af sameiningunni liggur því ekki fyrir.
Niðurstöður hópanna staðfesta það sem stjórn hjúkrunarráðs hefur áður bent á í umsögn sinni um málið, þ.e. að rök skorti fyrir því að flytja bráðamóttökuna við Hringbraut í Fossvog en hafa áfram aðra bráðastarfsemi og legudeildir við Hringbraut.
Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að haldið sé áfram á þeirri leið að klínískt áhættumat þeirra sem best þekkja til á hverjum tíma sé lagt til grundvallar við ákvarðanir um hagræðingu. Stjórn hjúkrunarráðs lýsir jafnframt yfir áhyggjum sínum af því að auknar hagræðingarkröfur heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis á rekstur spítalans, muni draga úr þjónustu og öryggi sjúklinga.
Stjórn hjúkrunarráðs skorar á framkvæmdastjórn spítalans að endurskoða þessa ákvörðun. Í því sambandi má benda á að nú liggja fyrir nýjar tillögur um að hægt verði að ráðast í byggingu á nýjum spítala við Hringbraut innan fárra ára. Tækifærin liggja í því að sameina alla starfsemi spítalans á einn stað og því er mikilvægt að flýta byggingu nýs spítala eins og mögulegt er.“
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. febrúar 2009, Innlent Lýsa áhyggjum af niðurskurði
- Miðvikudagur, 22. apríl 2009, Innlent Sameining bráðamóttöku yrði framfaraskref
- Miðvikudagur, 30. apríl 2008, Innlent Hjúkrunarfræðingar funda
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Hafa áhyggjur af niðurskurði á Landspítala
- Þriðjudagur, 22. apríl 2008, Innlent Skora á Landspítala að fresta vaktakerfisbreytingum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































