Breyting á útgáfu DV

Sú breyting verður á útgáfu DV í sumar að fimmtudagsblað kemur ekki út en stefnt verður að öflugra og stærra miðvikudagsblaði, að því er fram kemur á vef DV.

Breytingin er gerð í sparnaðarskyni vegna þess að verð á pappír hefur snarhækkað. Starfsmönnum ritstjórnar blaðsins verður ekki fækkað og stefnt er að því að efla fréttavef DV.

Samhliða fækkun útgáfudaga verður áskriftarverð DV lækkað í 2.590 krónur á mánuði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert