Hópur fólks kominn inn á Vatnsstíg
Hópur fólks er nú í húsi við Vatnsstíg sem lögregla rýmdi um miðjan síðasta mánuð. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík eru um tuttugu einstaklingar í húsinu. Tilkynnt var um veru þeirra þar um hádegi í dag og er málið í athugun.
Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um það hvort fólkið er í húsinu með leyfi eiganda þess en það var ekki hann sem tilkynnti um veru fólksins í húsinu.
Húsið er eitt þeirra húsa sem staðið hafa auð og ónotuð mánuðum saman í miðborg Reykjavíkur en nágrannar slíkra húsa hafa oft kvartað undan slæmum frágangi við þau og sagt þau ógna öryggi umhverfisins.
Hópurinn, sem er í húsinu, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að hann hafi farið inn í húsið í tilefni af því að í dag sé alþjóðlegur samstöðudagur með Rozbrat, húsi hústökufólks í Poznan, Póllandi.
Yfirlýsingin fer í heild sinni hér á eftir:
„FRÍBÚÐIN
Í húsinu okkar við Vatnsstíg 4 OPNAR AFTUR í dag, 6. maí, kl 12:00.
6. maí er alþjóðlegur samstöðudagur með Rozbrat, gamalgrónu tökuhúsi í Poznan, Póllandi. Lengi vel hafa þeir sem standa að Rozbrat átt í hættu að missa húsið og nú er hættan raunveruleg.
Enduropnun fríbúðarinnar er yfirlýsing. Við sýnum fólkinu í Póllandi samstöðu. Þau vilja verja heimili sitt og félagsrými frá eyðileggingu af hálfu yfirvalda.
Hún er einnig yfirlýsing um staðfestu og andstöðu. Við munum ekki lúta í lægra haldi! Borgin er fyrir fólkið! EKKI kapítalíska elítu: auðjöfra, bankakakkalakka, fjárfesta og verktaka!
Fríbúð er staður þar sem maður getur gefið og þegið veraldlega hluti. Staður þar sem allir eru velkomnir til að taka þátt. Þar eru engir peningar í spilinu.
Fríbúðin opnaði fyrst föstudaginn 17. apríl í tökuhúsinu við Vatnsstíg 4, 101 Reykjavík. Húsið var rýmt af lögreglu með miklu valdi 5 dögum síðar. Nú tökum við rýmið okkar aftur og opnum búðina á ný.
ÁFRAM ROZBRAT - ENDURHEIMTUM BORGINA!
ÁFRAM FRÍBÚÐIN - BORGIN mun verða okkar!"
Bloggað um fréttina
-
Björn Jónsson Í hænsnakofa með þettað vandræðahyski. -
Axel Jóhann Axelsson Húsaræningjar -
Halldór Halldórsson Og skíta svo á gólf, borð og stóla! -
Finnur Bárðarson Skildu þau mega þrífa þetta hús ?
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Lögreglan ræðir við hústökufólk
- Fimmtudagur, 9. apríl 2009, Innlent Hústökufólk á Vatnsstíg
- Sunnudagur, 18. október 2009, Innlent Slökkvistarfi að ljúka
- Föstudagur, 7. ágúst 2009, Innlent Lögregla stuggaði burt hústökufólki
- Föstudagur, 5. september 2008, Innlent Háskólanám hafið hjá Keili
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































