5 milljóna neyðaraðstoð til Srí Lanka

Flóttafólk í Srí Lanka.
Flóttafólk í Srí Lanka. Reuters

Utanríkisráðuneytið hefur veitt 5 milljónum króna í neyðaraðstoð vegna flóttafólks á Srí Lanka. Er aðstoðin veitt með milligöngu Rauða kross Íslands. Þá skorar Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra,  á stjórnvöld á Srí Lanka og baráttusamtök Tamíl Tígra að vernda óbreytta borgara í átökum stjórnarhermanna og Tamíl Tígra.

Utanríkisráðuneytið segir, að síðustu daga hafi tugir þúsunda borgara flúið átakasvæði í norðurhluta landsins. Enn séu, að því er talið er, um 50 þúsund óbreyttir borgarar á yfirráðasvæði Tamíl Tígra. Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðlegi Rauði krossinn staðfesti mikið mannfall meðal óbreyttra borgara og segja ástandið hörmulegt.

Össur segir í tilkynningunni, að það sé óviðunandi með öllu, að óbreyttir borgarar séu gerðir að peðum í átökum stríðandi fylkinga með tilheyrandi mannfalli og hörmungum. Stjórnvöldum á Sri Lanka og baráttusamtökum Tamíl Tígra beri skylda til að fara að alþjóðlegum mannúðarlögum. Báðum aðilum beri að tryggja öryggi almennra borgara og aðgengi mannúðar- og hjálparsamtaka til að koma matvælum og hjálpargögnum til þeirra sem eiga um sárt að binda.

Ófriður hefur ríkt á Sri Lanka um áratugaskeið. Allar Norðurlandaþjóðirnar í samstarfi við báða deiluaðila stóðu að Norrænu vopnahléseftirlitssveitinni,  sem starfaði frá 2002 til janúar 2008 á grundvelli friðarsamkomulags milli deiluaðilanna. Stjórnvöld á Sri Lanka sögðu upp friðarsamningnum einhliða og juku hernaðaríhlutun sína á Vanni-svæðinu í norðurhluta landsins, sem hefur verið áhrifasvæði Tamil Tígra.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur starfað að fiskimálum á Srí Lanka síðan 2005, en verkefnum stofnunarinnar lýkur þar á árinu, samkvæmt fyrri ákvörðun, og verði sendiráði Íslands jafnframt lokað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert