Mesta umrót síðan í stríðinu

Davíð Oddsson í Kastljósinu fræga sem Guðni gerir að umtalsefni. stækka

Davíð Oddsson í Kastljósinu fræga sem Guðni gerir að umtalsefni.

mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is

„Ég er nokkuð viss um og ætla að veðja á að þessi ár sem við erum að lifa núna muni teljast eins söguleg og eins miklir umbrotatímar í Íslandssögunni og styrjaldarárin," segir Guðni Th. Jóhannesson, lektor við HR. Hann lýsir ýtarlega samskiptum íslenskra og breskra ráðamanna fyrir hrun í nýrri bók.

„Þetta eru stærstu þáttaskilin í Íslandssögunni frá styrjaldarárunum og því draumur sagnfræðinga með áhuga á samtímanum að ráðast í svona skrif,“ segir Guðni, en bók hans „Hrunið“ kemur út á morgun.

Guðni aflar víða fanga í bók sinni og vitnar meðal annars til tölvupósts Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til Geirs H. Haarde þar sem hún eggjar Geir til að víkja Davíð Oddssyni úr sæti seðlabankastjóra.

Upplýsir ekki um sendanda

Guðni, sem vill ekki upplýsa hver afhenti honum tölvupóstinn, segir efni bréfsins forvitnilegt.

„Það er athyglisvert að Ingibjörg eggjar Geir til dáða. Hún segir við hann eitthvað á þessa leið: „Þú getur ekki látið þetta yfir þig ganga að seðlabankastjóri komi svona fram,"" segir Guðni um póstinn sem var sendur eftir sögulegt og umdeilt Kastljósviðtal við Davíð Oddsson þriðjudagskvöldið 7. október.

„Það gerist í þessari sömu viku að Samfylkingin lætur bóka á ríkisstjórnarfundi að formaður bankastjórnar Seðlabankans sitji ekki í umboði hennar. Ef ég tala frjálslega þá sýnist það fáránlegt að í verstu efnahagskrísu þjóðarinnar segir helmingur ríkisstjórnarinnar: Við berum enga ábyrgð á valdamesta embættismanni landsins. Auðvitað var þetta fáránlegt ástand."

Guðni fjallar einnig ýtarlega um fundi og samtöl íslenskra og breskra ráðamanna örlagamánuðina áður en íslenska bankakerfið hrundi.

Geir fullvissaði Brown

Hann rifjar upp samtal Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, og Alistairs Darlings fjármálaráðherra föstudaginn 3. október.

„Erindi Darlings er nokkuð brýnt. Hann er að segja að íslenskur banki í London sé að flytja fé frá Bretlandi til Íslands á ólöglegan hátt og að við það verði ekki unað og vilji Geir vinsamlegast gera eitthvað í málinu.

Til að gera langa sögu stutta þykist Geir ganga úr skugga um að þetta sé allt á misskilningi byggt og telur að Bretar hljóti að átta sig á því.

Svo gerist það á sunnudagskvöldið að Brown hefur samband við Geir og aftur er þetta nefnt, ólöglegir fjármagnsflutningar, sem Bretar muni ekki sætta sig við. Það samtal snýst þó að miklum hluta um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn því Brown – ekki af því að hann sé einhver sérstakur vinur Íslendinga – lítur svo á að vandi Íslendinga sé líka vandi Breta. Hann segir við Geir eitthvað á þessa lund:

„Þið verðið að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þið getið ekki leyst bankakreppuna upp á eigin spýtur. Þið verðið að tala við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, helst á morgun," hefur Guðni lauslega eftir breska forsætisráðherranum.

Hver verður dómur sögunnar?

Guðni telur samtölin afdrifarík.

„Það er ef til vill einn af stóru vendipunktunum í þessari sögu og um leið spurning hvort það verði dómur sögunnar að ríkisstjórnin hafi reynt of lengi að forðast þetta, að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hver veit hvað hefði gerst, ef niður8 staðan hefði orðið sú, að Ísland hefði leitað til sjóðsins?

Því eins og Brown hamraði á við Geir H. Haarde sunnudagskvöldið 5. október: „Þá mun enginn lána ykkur peninga nema þið gangið inn í áætlun sjóðsins. Það munu allir líta svo á að menn séu að henda peningum í einhverja hít nema fyrir hendi sé áætlun frá sjóðnum um að stýra endurreisn bankakerfisins á Íslandi.

Í staðinn voru sett neyðarlög og þau leiddu til þess að Bretar urðu enn tortryggnari og ræddu um að Íslendingar ætluðu bara að loka sig af á þessari eyju og láta allar erlendar skuldir falla."

Þegar eignirnar voru frystar

Guðni fjallar einnig um samtal Pauls Myners, starfsmanns breska fjármálaráðuneytisins, og Árna M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, að morgni 8. október sl.

„Það sem mér þykir fréttnæmast við þetta samtal, þegar Bretar eru nánast í þeim töluðu orðum að frysta allar eignir Landsbankans, er að Meyners er að segja Árna að Bretum hafi verið nauðugur einn sá kostur að gera þetta en segir hins vegar ekki berum orðum hvað „þetta" feli í sér sem þeir eru að gera.

Hann átti þá sem sagt við eignafrystingu á grundvalli laga um varnir gegn hryðjuverkum. Það vekur auðvitað athygli, og það er ekkert endilega við Árna að sakast í því, að hann er ljúfmennskan uppmáluð og segir: „Við erum líka allir af vilja gerðir til að leysa þennan mikla vanda og vonandi getum við unnið saman."

Annars vegar eru Bretarnir ekki að segja alveg hreint út til hvaða ráða þeir ætla að grípa og hins vegar áttar Árni sig ekki á því, og það er kannski ekki að undra, að þeir eru að fara að beita Íslendinga ofboðslega hörðum aðgerðum."

Árni gaf Darling færi á túlkun

Guðni víkur einnig að samskiptum Árna og Darlings í miðju hruninu.

„Það sem eftir stendur er sú staðreynd að Árni gaf Darling pínulítið færi á að túlka afstöðu stjórnvalda á Íslandi sem svo að þau ætluðu hugsanlega ekki að standa við skuldbindingar sínar um ábyrgðir á Icesave-innistæðum og það nýttu Bretarnir sér til hins ýtrasta.

Það má segja að það hefði verið heppilegra ef Árni hefði ekki gefið þennan litla höggstað á sér, með því að segja að Íslendingar verði fyrst að sjá hvað þeir geta gert í sínum eigin vandamálum áður en þeir fara að snúa sér að Icesave, eða eitthvað í þá áttina."

Guðni segir óvissuna um tryggingar íslensku ríkisstjórnarinnar hafa skapraunað Bretunum.

„Það sem gerði Bretanna hvað reiðasta er sú staðreynd að að morgni mánudagsins 6. október ákvað íslenska ríkisstjórnin að tryggja að fullu allar bankainnistæður á Íslandi.

Bretarnir sögðu: „Ef þið ætlið að gera þetta þá verðið þið að tryggja innistæður Icesave í London. Icesave er bara útibú Landsbankans í Bretlandi. Þið getið ekki skipt þessu svona." Icesave-deilan öll sýndi í hnotskurn að í alþjóðasamskiptum er það vald og máttur sem ræður, ekki lagatúlkanir."

Njótum þess að vita framhaldið

Aðspurður hvort ekki sé nokkuð grimmt að gagnrýna fulltrúa íslenskra stjórnvalda fyrir mistök, í ljósi erfiðra aðstæðna og hraðrar atburðarásar, segir Guðni að vissulega verði að setja hlutina í samhengi.

„Við sem erum að velta þessum hlutum fyrir okkur eftir á vitum hvað gerist næst á meðan mennirnir sem hér koma við sögu eru þarna í nánast algerri óvissu.

Það er kannski heildarniðurstaðan í þessari sögu allri að það er ekki hægt að finna einhvern einn sem ber meginábyrgð á því að svo fór sem fór og ekki heldur einhvern einn atburð eða atvik, heldur var þetta ótölulegur fjöldi atburða sem réð því að allt fór til fjandans."

– Hvað með fund Gordons Browns og Geirs H. Haarde í Downingstræti 10. í apríl 2008? Kom Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til umræðu?

„Svo virðist ekki vera ef marka má minnisblaðið um fundinn. Brown vék talinu að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en var ekkert að hvetja Íslendinga eða letja að leita til hans. Það virðist ekki hafa verið umræðuefnið þarna. Fundurinn sýnir og sannar það sem við vissum fyrir að Bretar voru farnir að hafa sívaxandi áhyggjur af því að íslensku bankarnir gætu lent í vandræðum og að þau vandræði gætu bitnað á breskum sparifjáreigendum."

Hefðu átt að bregðast við fyrr

– Hefðu Íslendingar átt að bregðast við þessum vanda fyrr?

„Eftir á að hyggja kemst maður ekki hjá því að sjá það. Því miður var þetta „reddast"-hugarfar of ríkt hjá okkur. Hins vegar líka það þegar vel gekk, þegar allt var hér í uppsveiflu, að þá klingdu vissulega viðvörunarbjöllur en það voru allt of fáir sem tóku mark á þeim.

Að sama skapi voru allt of margir sem töldu að þeir sem væru að klingja þessum bjöllum væru útlendingar sem vissu ekkert um íslenska efnahagsundrið og kraftinn í Íslendingum. Þannig að við lokuðum dálítið augunum fyrir því sem við hefðum átt að sjá."

Guðni rifjar upp erjur Davíðs og fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

„Eins og sást á sínum tíma var Davíð ekki hrifinn af því í fyrstu að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og sá margt slæmt við það samstarf.

Svo þegar ríkisstjórnin taldi að hún ætti engra annarra kosta völ en að biðja um hjálp frá sjóðnum þá var Davíð áfram í stóli seðlabankastjóra og varð auðvitað að vinna með fulltrúum sjóðsins og gerði það eflaust af bestu samvisku.

Hins vegar er það augljóst og um það vitna margar frásagnir að það kom fyrir að það kastaðist í kekki.

Setninguna sem ég hef eftir Davíð á einum fundinum með fulltrúum AGS hef ég úr nokkrum áttum þótt enginn vildi gangast við henni undir nafni. Hún var svona á ensku: „You do not set the agenda in my house" eða „Þið ráðið ekki dagskránni í mínum húsum"."

Rúður styrktar í Alþingishúsinu svo lítið bar á

– Þú skrifar í bókinni að í desemberbyrjun hafi starfsmenn Alþingishússins óttast að árás yrði gerð á húsið. Hversu mikill var þessi ótti?

„Þeir sem koma að því að gæta öryggis þinghússins þóttust hafa rökstuddan grun um að þeir væru til hér á landi sem vildu ef til vill reyna að brjóta sér leið inn í þinghúsið, þá með því að brjóta niður hurðir og rúður. Þess vegna voru hurðir styrktar og rúður líka svo lítið bar á."

– Óttuðust starfsmenn Alþingis að eitthvað í líkingu við atburðina 1949, þegar lögregla beitti táragasi á Austurvelli gegn andstæðingum inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið, myndi endurtaka sig?

„Ekki þá, en þegar komið er fram í miðjan janúar eru þeir örugglega til í lögregluliðinu sem sjá fyrir sér að þetta geti farið gjörsamlega úr böndunum. Það sem olli þessum áhyggjum kannski frekar en annað var sæmilega skipulagður atgangur 8. desember þegar hópur fólks hraðaði sér í þinghúsið og veittist að þingvörðum.

Eftir það jukust þessar áhyggjur. Aðfaranótt 21. janúar léku logar um þinghúsið og þá eru menn að leika sér að eldinum," segir Guðni Th. Jóhannesson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
Sparibaukurinn er til sölu - Peugeot 206 HDI árg.2006
Þessi bíll notar disel olíu, hann eyðir mjög litlu 4-5 lítrum á hundraðið. Hann ...
Yorkshire terrier bræður í leit að heimili
Yorkshire terrier rakkar leita að framtíðarheimili. Yndislegur heimilishundur, f...
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...