Mótmæla Icesave samningi
EFtir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur mbl sjónvarpi. tka@mbl.isÞór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir upphæð Icesave samninganna hærri en Ísland ráði við en í undirbúningi er þingsályktunartillaga þar sem mótmælt er drögum að samningi við Breta vegna málsins.
Sterkur orðrómur er um það í þinginu að skrifað verði fljótlega undir en Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra bar það til baka í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Sagði Steingrímur, í svari við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þingmanns Framsóknarflokks, að viðræður aðila hefðu gengið hægar en ætlað var, m.a. vegna þess að Bretar hafi ítrekað óskað eftir frestun. Því séu formlegar samningaviðræður ekki hafnar og ekki standi til að ganga frá samkomulagi á morgun eða næstu daga. Slíkt samkomulag verði heldur ekki gert án samráðs við utanríkismáalanefnd þingsins.
Þór Saari sagðist hins vegar í dag hafa það úr fleiri en einni átt að það standi til að skrifa undir skuldbindingarnar á morgun í London.
Þór segist vara við því enda sé um að ræða skuldbindingar upp að sjö hundruð milljörðum. Íslendingar eigi ekki að þurfa að kyngja því að skrifað sé undir slíkar skuldbindingar án þess að Alþingi hafi fjalla ítarlega um málið.
Þór segir ekki ljóst hverskonar samningur þetta sé. Hugmyndin sé þó sú að traust útlánasöfn bankanna komi á móti þessum 700 milljörðum þannig að Íslendingar greiði að hámarki eitthundrað milljarða. Traust útlánasöfn séu hinsvegar ekki fyrir hendi í dag. Sem dæmi hafi skuldabréf í General Motors verið traust áður en fyrirtækið fór á hliðina um helgina.
Hann segir að stjórnvöldum virðist liggja á að ljúka þessu máli til að geta hafið aðildarviðræður við ESB en það sé skilyrði fyrir viðræðum að þessu máli verði lokið.
Þór Saari segir að þarna sé hugsanlega verið í asanum að bæta 700 milljörðum við skuldaklafa Íslendinga. Það sé stór upphæð fyrir Íslendinga en sé litið til höfðatölu, sé samsvarandi upphæð um 300 millljónir fyrir Breta. Þetta sé því nánast skiptimynt í því samhengi.
Bloggað um fréttina
-
Heiða B. Heiðars Verð stoltari með hverjum deginum -
Jenný Anna Baldursdóttir Svar óskast -
Þórður Björn Sigurðsson Íslandsdeild Attac hvetur stjórnvöld til að stíga frá skurðarbrettinu -
Páll Höskuldsson Áfram með smjörið -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Kostar ESB 700 milljarða? -
Jón Valur Jensson Þór Saari tekur stjórnvöld í bólinu; mælir gegn svikasamningi með ... -
Sigurður Þorsteinsson Eitt af stóru málunum. -
Sigurbjörn Svavarsson ICESAVE skuldin -
Ómar Geirsson Á þessu hefur Samfylkingin efni á. -
Axel Pétur Axelsson Þjóðaratkvæði -
Ólafur Eiríksson Allavega einn við þokkalega meðvitund á alþingi. -
Haukur Nikulásson IceSave klúðrið er skilgetið afkvæmi neyðarlaganna í haust -
Konráð Ragnarsson ÍSLAND EFTIR ICESAVE! (MYND) -
Jón Ingi Cæsarsson Þingsályktunartillaga um orðróm.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Innlent Einbeitum okkur að Icesave
- Föstudagur, 17. júlí 2009, Innlent Frestun Icesave slæmur kostur
- Mánudagur, 8. júní 2009, Innlent Samið af sér með skammarlegum hætti
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Hreyfingin verður til
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent „Skammist þið ykkar"
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































