Árni staðráðinn í að bjarga Atvinnuleysistryggingasjóði

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra mbl.is

Ekki hefur enn verið ákveðið nákvæmlega hvernig aflað verður fjár í Atvinnuleysistryggingasjóð en fyrir liggur að hann verður uppurinn í haust vegna hinnar miklu fjölgunar atvinnulausra. Verður það að öllum líkindum um mánaðamót október/nóvember.

„Útgjöld til atvinnuleysistrygginga eru forgangsatriði og bæturnar verða greiddar,“ segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra. Hann kveður málið vera í náinni skoðun.

Hann segir að nota verði skatttekjur og beita niðurskurði í rekstri ríkisins til að bregðast við. „Ég sé ekki að við ráðum við að leggja á skatta fyrir öllum fyrirsjáanlegum umframútgjöldum sjóðsins á þessu og næsta ári,“ segir Árni og telur því sennilegt að leitað verði skammtímalána til að fjármagna sjóðinn. Í bili muni féð þó koma úr ríkissjóði.

Bitnar yfirleitt á launþegum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir söguna sýna að þegar atvinnuleysi aukist sé yfirleitt gripið til þess að hækka svonefnt tryggingagjald. Er gjaldið lögbundinn tekjustofn Atvinnuleysistryggingasjóðs og inna launþegar það af hendi samkvæmt lögum þar um. „Ég á ekki von á því að það gerist neitt annað núna,“ segir Vilhjálmur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert