Um 130 þúsund fokheldar íbúðir skráðar

Horft á Esjuna yfir háhýsin í Mánatúni í Reykjavík. Úr …
Horft á Esjuna yfir háhýsin í Mánatúni í Reykjavík. Úr myndasafni. mbl.is/Golli

Fjöldi fokheldra skráðra íbúða á Íslandi í byrjun júní árið 2009 var 129.658. Um áramótin 2008-2009 var fjöldi skráðra íbúða 129.366. Hefur því skráningum fjölgað um 292 frá áramótunum 2008-2009 til byrjun júní 2009. Þetta kemur fram á vef Fasteignaskrár Íslands.

Þar segir ennfremur að fjöldi fokheldra skráðra íbúða á Íslandi í byrjun júní árið 2009 skiptist þannig milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar að fjöldi íbúða á höfuðborgarsvæðinu sé 79.682 og 49.976 íbúðir utan þess.

Frá áramótum 2008-2009 til byrjun júní 2009 hefur skráðum íbúðum fjölgað um 178 á höfuðborgarsvæðinu og 114 utan höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert